Þjónustustefna Skagabyggðar

Þjónustustefna sveitarfélagsins er sett á grunni 130. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Í júní 2021 var lögfest ákvæði í fyrrnefndum sveitarstjórnarlögum að frumkvæði Byggðastofnunar sem kveður á um að sveitarstjórn skuli móta stefnu sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðarkjörnum. Við gerð og mótun stefnunnar skal sveitarstjórn hafa samráð við íbúa sveitarfélagsins.

Á 8. fundi sveitarstjórnar Skagabyggðar þann 7. desember 2023 voru drög að þjónustustefnu samþykkt.

Hér liggja því drög að Þjónustustefnu sveitarfélagsins fyrir íbúa sveitarfélagsins til samráðs. Ef íbúar hafa athugasemdir eða ábendingar er hægt að senda þær á netfangið skaga.byggd@simnet.is, athugasemdir eða ábendingar þurfa að berast fyrir 22. janúar 2024.