Álagning fasteignagjalda 2024

Álagningarseðlar fasteignagjalda 2024 eru nú aðgengilegir á island.is.

Á álagningarseðli koma fram fjárhæðir fasteignaskatts og kostnaðar við úrgangsliði þar sem það á við.

Gjöldin eru innheimt með 2 gjalddögum, annars vegar 1. maí og hins vegar 1. október nema þar sem gjöldin eru undir 50.000 kr þá innheimtast þau öll 1. maí.

Eindagi fasteignagjalda er 15 dögum frá gjalddaga.

Fasteignagjöldin eru til innheimtu í netbönkum og hafa nú þegar birst þar.

Greiðslu- og álagningarseðlar fasteignagjalda eru nú einungis birtir rafrænt og ekki lengur sendir út á pappírsformi.

Nánari upplýsingar er hægt að sjá á heimasíðu Skagabyggðar hér